21.4.2007 | 00:40
200miljónkróna fiđla,Páll Magnússon, Jónas Jónasson,RíkisÚTVARPIĐ og hvar voru börn Páls frá fyrra hjónabandi?
Mér hefur alltaf líkađ vel viđ Pál Magnússon. Ég er sannfćrđ um ađ hann er góđur mađur og réttsýnn. Í kvöld var hann í viđtali á RÁS 1 hjá Jónasi Jónassyni. Ţetta var merkilegt viđtal ţar sem tókust á gamli og nýji tíminnn eins glögglega og getur veriđ. Sagnfrćđinemar, geymiđ ţetta sem heimild.
Jónas Jónasson hélt sínum stíl og striki á međan Páll reyndi ljúflega ađ smeygja sér framhjá áleitnum spunrningum útvarpsmannsins ógurlega. Jónas reyndi líka ađ bera spurningar sínar fram á kurteisan en "afhjúpandi" hátt međ sínu lagi. Ţó var ljóst ađ undir nirđi hjá Jónasi bjó nú óöryggi í fyrsta sinn. "Hvađ verđur um mig PÁLL", langđi hann greinilega ađ spyrja. Hann spurđi hins vegar um fiđluna frćgu sem fađir hans hafđi átt ţátt í ađ kaupa á sínum tíma og íslenska ríkiđ hefur innleyst til sín. Ég spyr ; Hver spilar á fiđluna núna?
Ţörf Jónasar fyrir ađ fá "status" útvarpsins á hreint var augljós allt viđtaliđ, ţótt hann reyndi sitt ýtrasta til ađ halda gamla góđa stílnum. Ţegar kom ađ ţví ađ spyrja Pál um fjölskyldulífiđ ţá var silfriđ pússađ heldur. Páll svarađi eingöngu til um börn sín í núverandi hjónabandi, en skautađi alveg framhjá ţeim, sem hann á í ţví fyrra. Ţetta er sárt fyrir hin börnin. Viđ sem búum í nútímasamfélagi ţví sem Páll vill leiđa RUV inn í, vitum ađ margar fjölskyldur í dag eru flóknar, en lágmark er ađ gera öllum jafnt undir höfđi.
Eins og sjá má af ţví ađ ég hlusta á RÁS 1 kl. 24.00 á föstudagskvöldi, ţá er ég gamaldags . RÁS 1er bara sú útvarpsstöđ sem ég hlusta eingöngu á. Mér er hins vegar nokk sama ţótt hún nútímavćđis eitthvađ en samt sem áđur verđur einhvers stađar í fjölmiđlaveseninu ađ vera til ró og upplýsing eins og veriđ hefur á GUFUNNI.
Mörg ríkisstofnunin hefur nákvćmlega viđ ţann vanda ađ etja sem Páll lýsti; "klíkuvćđingu" skiljanlega og án ţess ađ vera endilega neikvćtt. Einhver andi sem myndast í gegnum tíđina. Ég lái Páli ekki ađ vilja ekki fara inn í slíkt. Ef honum tekst ađ halda góđum gildum og nútímavćđa er hann snillingur.
Tíminn leiđir ţađ í ljós. Stöđnun er engum fyrir góđu. Ekki heldur Jónasi Jónassyni, sem reyndi sitt besta í ţessu viđtali ađ fá út úr útvarpsstjóra nýrra tíma eitthvađ sem félögum hans til margra ára vćri bitastćtt. Páll á verk fyrir höndum. Voandi tekst honum ađ láta leiđast hönd í hönd nýja og gamla tímann.
En Páll, lífiđ er aldrei svona pússađ eins og ţú vildir vera láta. Fjölmiđlađr hafa áhrif á okkar skođanir og ađgangsharka fréttamanna, á hún bara viđ um suma?
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.