"Leyfðu mér að tala" konan frá Samfylkingunni...

Ég er ákveðin í því að kjósa Spaugstofuna í næstu kosningum. Svei mér þá. Í síðustu könnun fór atkæði mitt inn í súluritið óákveðnir. En þar sem mig lagar til að vera ákveðin, þá hlustaði ég á N1 umræðuþáttinn og niðurstaðan var Zero. Hver er þessi kona frá Samfylkingunni sem heimtar alltaf orðið? Er þetta konan sem var í Katljósinu um daginn og hélt bæklingnum... rís þú "Unga Ísland"s merki fram eins og trúarriti? og gaf ekki andmælanda sínum færi á að segja nema hálft orð?

 Í umræðuþættinum, sem ég hlýddi á  núna átti að ræða Evrópumálin m.a.

Það getur ekki verið ALLT GOTT við að ganga í Evrópusambandið. Til að ég hlusti vantar mig rök MEÐ og á MÓTI. Þannig gæti ég ákveðið hvort mé fynndist vega þyngra þegar upp er staðið. Hvers vegna er inngang í ESB BARA GOTT MÁL! í málflutningi Samfylkingarinnar? Er ekki nær að færa okkur kjósendum málflutinginn þannig að við skiljum KOSTI og GALLA. Okkur hlýtur að vera treystandi til að vega þá og meta á okkar eigin foresndum.

Las blogg Heimssýnar til að fá innsýn í málið. Þar er viðkomandi raunar á móti, en telur þó einnig upp nokkra kosti.

Sem sé "leyfðu mér að tala" konan náði ekki óákveðnum kjósanda þaran en það gerði heldur enginn annar.

Kapphlaupið heldur áfram. Grein í Karls Th. Birgissonar í Blaðinu á Sumardaginn fyrsta um Impregio og þátt þeirra félaga Davíðs og Bellusconis í björgunaraðgerðum þess, var afar áhugaverð.

Þá hef ég alltaf gaman af Illuga Gunnarssyni, er hann ekki annars hægri grænn?

Hvað er annars málið. Mig vantar nýtt sjónvarp. Hver býður best?

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband