15.5.2007 | 11:26
Rjómalöguð svik.
Þá er þessi uppskrift notuð eina ferðina enn, elduð og borin á borð. Ég ætla ekki að klára matinn minn.
Ef Geir H. Haarde ætlar að sniðganga lýðræðislegar niðurstöður kosninganna þá hlýtur hann að veikja sitt eigið traust og traust Sjálfstæðisflokksins.
Það ríkir traust á milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, segja þeir. Hvað með traust milli þjóðar og stjórnvalds? þarf ekki að ríkja traust þar á milli líka?
Við kjósendur erum eins og langveikir meðvirknisjúklingar. Hvern kjördaginn á fætur öðrum kviknar vonin um að fá hlustun, hafa áhrif, opna augu... Valdafíkillinn hefur alltaf yfirhöndina.
Framsóknarmaddaman er fárveik orðin. Geir, hvernig getur þú farið heim með henni. Ertu algerlega kominn í skítinn?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.