12.10.2009 | 20:31
Reykjanesblóm.
15 mánaða búseta mín hér í Reykjanesbæ, hefur kennt mér ýmislegt.
M.a. það, að fyrir okkur sem höldum að miðja alheimsins sé Reykjavík, sem næst miðbænum og þar um kring, er hollt að gerast íbúi annars sveitafélags.
Stækkar sjóndeildarhringurinn eða minnkar? Hann breytist.
S.l. haust settis ég á skólabekk eftir langt hlé, við Háskólann á Keili, sem staðsettur er á gamla varnarsvæðinu, sem nú ber nafið Ásbrú.
Umhendis var ljós uppbyggingarorkan í loftinu. / Fullt í gangi og einhvern vegin sá maður fyrir sér blómlegt bæjarfélag birtast innana skamms. Það var þarna á leiðinni, ... blómknappur við að springa út. Búið að sá fræinu, vökva, grisja og hirða um dágóðan tíma... nokkur ár.
Ég veit ekki af hverju ég hugsaði það við stjórnarskiptin í vetur Shit nú á þetta hér, ... blómið góða... eftir að fá nokkra skelli, tafir koma, gerðar verða athugasemdir, hlutir settir á ís.
Það þarf ekki annað en venjulega manneskju til að sjá, skilja og skynja hve ákvarðanir einstaklinga sem stýra bátnum þessa dagana bæta óþarfa sorg og áhyggjum ofan á fyrir þá sem hér á Reykjanesi búa. Ákvarðanir sem virðast bera vitni tengslaleysis við raunverulegar aðstæður og tilfinningar.
Seint gæti ég talist sérlegur talsmaður stóriðju sem einhliða búgreinar, en ég segi það fullum fetum að mín skoðun er sú, að:
ÖLL ÞAU VERKEFNI, SEM UNDIRBÚIN HAFA VERIÐ AF KOSTGÆFNI OG ELJUSEMI UNDANFARIN ÁR FYRIR FRAMTÍIÐAR ATVINNU HÉR Á REYKJANESI EIGA AÐ FÁ AÐ KOMA TIL FRAMKVÆMDA, NÚ ÞEGAR. Þetta eru verkefni sem eru tilbúin.
Þess vegna sat ég fjölsóttan borgarafund í Framhaldsskólanum hér í kvöld og hlýddi á bæjarstjóra sveitafélaganna tala, ásamt formanni Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur. Nokkrir þingmenn flokka (utan VG), tóku til máls og virtist einhugur um að losa hnútinn.
Það vona ég sannarlega að verði ofaná.
Bæjarbúar og ráðamenn hér, er unnið hafa hörðum höndum undanfarin ár,eiga ekkert annað skilið en að fá að sjá árangur verka sinna og uppskera eins vel og þeir hafa sáð til.
Áfram Reykjanes.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.