Goran Bergovic - ég elska þig.

Á síðkvöldsferð um undur bloggheima, datt ég niður á síðu ErnuHlyns. Þar var linkur inn á YouTube og gaf að líta á myndband Goran Bergovic og Iggy Pop, á The deathcar. Engum blöðum um það að fletta ég er gersamlega kolfallin og búin að hlusta á öll lögin með meistara Goran og þar að auki besta úrval af Sígaunatónlist sem ég hef komist í hingað til. Orginal.

Afar skemmtileg ferð.

Verst að ég kann ekki að setja mjúsikið inn á síðuna.

goranbregovic_2  En hér kemur mynd af þessum gullfallega manni í staðinn. (Gerir kannski ekki alveg sama gagn), nema höfðar til annarra skilnigarvita.

Þar sem ég missti því miður af tónleikunum hans hér heima, er ekkert annað að gera en elta mannin til útlanda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband